Nú stendur yfir sýning á verkum Brynhildar Kristinsdóttur hjá Leikfangasafninu í innbænum. Sýningin er unnin í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri og styrkt af SSNE
Um verkin segir Brynhildur „Verkin sem ég hef verið að vinna undanfarin ár undir heitinu „Verur“ hafa fylgt mér frá því að ég skoðaði Museo della Statue Stele Lunigianesi í Pontremoli á Ítalíu vorið 1990. Frumstæðar höggmyndirnar höfðu mikil áhrif á mig og hafa fylgt mér æ síðan. Í verkum mínum skoða ég formið. Ég velti fyrir mér hvað er innan og utan myndformsins og tengslum þess við umhverfið, en undanfarin ár hef ég í auknum mæli valið að sýna verk mín utandyra. Verkin „Verurnar“ vísa til mennskunnar og hugleiðinga um skelina og efnið. Hvað er fyrir innan, hvað er fyrir utan og hvernig viljum við vaxa. Ég er að vinna með blæbrigði lita, áferð og form hið sjónræna en ég er líka að hugleiða kjarnan í forminu, kjarna okkar í forminu. Við pössum ekki alltaf inn í formin sem okkur eru úthlutuð. Í samfélögum manna hafa verið búin til sniðmát og kerfi sem þjóna ekki lengur tilgangi sínum og eru fyrst og fremst að viðhalda eigin tilvist. Þau eru hætt að þjóna bæði mennskunni og jörðinni. Sum okkar kjósa að vaxa eins og rætur í allar áttir á meðan aðrir kjósa beinar brautir“.
Áhorfendum er velkomið að ganga inn í verkin, snerta þau og verða hluti af þeim.
