VEFTIR JARÐAR

Ragnheiður Björk Þórsdóttir heldur sýninguna VEFTIR JARÐAR
Frá
15/05/2026
Til
25/05/2026

Ragnheiður Björk Þórsdóttir heldur sýninguna VEFTIR JARÐAR í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri, dagana 15. – 25. maí.

Viðfangsefni sýningarinnar eru aðallega myndvefnaðarverk sem tengjast náttúrunni og hinum hæga takti vefsins.

Opnun verður haldin föstudaginn 15. maí á milli 17:00 og 20:00.

Almennur opnunartími verður 14:00 – 17:00.
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag (18. – 20. maí) verður lokað.
Hægt er að hafa samband við Ragnheiði alla daga í síma 847-5133.

Öll velkomin.