Útlínur og form/steinar

Erlingur Valgarðsson
Frá
04/04/2026
Til
12/04/2026

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Útlínur og form / steinar kl. 15.00 til 18.00, laugardaginn 4 apríl.
Sýningin er opin daglega kl. 14.00 til 18.00 til sunnudagsins 12 apríl.

Um sýninguna.

Á sýningunni vinnur Elli með form og útlínur steina en þeir hafa spilað stórt hlutverk í málverkum hans í yfir 30 ár.
Formin eru mjúk og bogadregin, þau vísa til þunga og kyrrðar og birtast frekar sem hugmynd en myndræn eftirlíking.
Með því að einangra útlínur steina frekar en að sýna þá í heild er athyglinni beint að formi, rými og innbyrðis tengslum.