Mjólkurbúðin salur Myndlistarfélagsins – Sýningatímabilið 2027

Við höfum opnað fyrir umsóknir fyrir sýningatímabilið 2027 í Mjólkurbúðinni-Sal Myndlistarfélagsins á Akureyri. Salurinn er prýddur stórum gluggum sem gera sýningar í salnum sýnilegar frá götunni. Viljum við bjóða listamönnum salinn sem er staðsettur í Listagilinu á Akureyri til leigu. Umsóknir þurfa að berast félaginu í gegnum https://myndlistarfelagid.is/#/ undir liðnum: Umsókn um sýningu.

Ef einhverjar spurningar vakna svörum við þeim jafnframt í tölvupósti: myndlistarfelagak@gmail.com
Vinsamlega takið fram hvaða tími myndi henta ykkur og munum við verða við þeim óskum eftir því sem mögulegt er.