LEYSING

Leysing
Frá
10/07/2026
Til
19/07/2026

Mjólkurbúðin: Leysing

Verið velkomin á opnun samsýningarinnar Leysing í Mjólkurbúðinni – Sal Myndlistarfélagsins, Kaupvangsstræti 12, Akureyri, föstudaginn 10. júlí, kl. 17. Anna Jóa, Hulda Ágústsdóttir og Ragnheiður Hrafnkelsdóttir sýna ný verk er byggja á sameiginlegum merkingarþræði sem spunninn er úr hversdagslegum hlutum og stöðum. Leysing er þriðja samsýning listamannanna og sú fyrsta utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrri sýningar þeirra eru Himna í SÍM-salnum í Reykjavík árið 2024 og Nálgun í Grafíksalnum í Reykjavík árið 2016. Sýningin verður opin 11.-19. júlí, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.

Um listamennina:

Myndverk Önnu Jóa hverfast um myndbreytingareðli umhverfis og hugarheima og eru sprottin af skynrænni snertingu við efni og mynstur á dvalarstöðum hennar og í hversdagslegum veruleika. Hún hefur einkum fengist við að gera teikningar, ljóðræna texta, vatnslitamyndir og olíumálverk sem tengjast efnislegum hlutum, formi þeirra og ásýnd, og þeirri brotakenndu merkingu sem lesa má úr þeim.
Anna lauk námi frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og meistaragráðu í myndlist frá École nationale supérieure des Arts Décoratifs (ENSAD) í París árið 1996. Hún nam síðar listfræði við Háskóla Íslands. Anna hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og erlendis. Verk eftir hana eru í eigu stofnana, fyrirtækja og einkaaðila. Anna var einn stofnenda sýningarrýmisins Gallerís Skugga og hefur hún starfað við sýningarstjórnun, sinnt ritstörfum, listgagnrýni og stundakennslu í listfræði við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Hún starfar nú sem sérfræðingur á Listasafni Íslands.

Hulda Ágústsdóttir vinnur í verkum sínum með spegilmyndir og tilfærslur hversdagslegra hluta þar sem skilin á milli ytra og innra umhverfis leysast upp.
Hulda Ágústsdóttir stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk meistaragráðu í myndlist frá Pratt Institute í New York árið 1993. Árið 2018 lauk Hulda MA-gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum og komið að ýmsum verkefnum á sviði myndlistar á undanförnum árum.

Ragnheiður Guðbjargar Hrafnkelsdóttir beinir sjónum sínum að hinu hversdagslega umhverfi og hlutum sem við umgöngumst í daglegu lífi. Verkin hverfast um tengsl mannshugans við efnisheiminn; hvernig við upplifum hann og túlkum. Í verkum sínum leitast Ragnheiður við að snúa uppá þær hefðbundnu vísanir sem tengjast ýmsum hlutum — hvort sem um er að ræða borðklúta, prjónaða þumla eða annað úr umhverfinu, og kalla fram hugrenningatengsl sem ekki eru fyrirsjáanleg.
Ragnheiður útskrifaðist úr Skolen for Brugskunst í Kaupmannahöfn 1982 og stundaði nám við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam á árunum 1982-4. Hún lauk meistaragráðu frá Pratt Institute í New York 1991 og síðar BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla íslands. Ragnheiður býr og starfar í Reykjavík.