KOLLAPS/HRUN

KOLLAPS/HRUN
Frá
28/08/2026
Til
05/09/2026

Myndlistarfélagið á Akureyri tekur á móti kollegum sínum frá Færeyjum!

Myndlistarfélagið á Akureyri hefur á liðnu ári stofnað til samstarfs við myndlistarmenn í Færeyjum, nánar tiltekið Føroysk Myndlistafólk, sem eru sambærileg samtök og Samband íslenskra myndlistarmanna á Íslandi. Fyrstu skrefin í þessu samstarfi hafa þegar verið stigin en félagið stóð fyrir samsýningu  félaga í Myndlistarfélaginu 8. til 21. september 2025  í Gallarí Havnará í Þórshöfn. Það er því Myndlistarfélaginu sönn ánægja að geta nú tekið á móti kollegum sínum frá Færeyjum!

Myndlistamennirnir: Guðrid Poulsen, Jón Sonni Jensen, Kristin Helgadóttir, Maibritt Marjunardóttir, Ole Wich og Rannvá Holm Mortensen  opna sýningu sína „Kollaps“ í Mjólkurbúðinni á Akureyrarvöku.

Sýningin „HRUN“ er byggð á dogma aðferðinni, sem felst í því að hópurinn setur sér ákveðnar reglur til að fara eftir. Sýnendur vinna með hugtakið „hrun“ sem óhlutbundið þema, en líka sem hráefni og efnislega takmörkun. Öll verkin geta „hrunið“, þau felld saman og síðan sett upp aftur. Verkin eru ekki föst í endanlegri mynd, en þess í stað sjá þau upplausn sína sem upphafspunkt nýrrar ferðar. Áhersla er lögð á vinnuferlið og möguleika efniviðarins frekar en að hylla frosna minnisvarða.
Sýningin endurspeglar þá heimsmynd sem við búum við: alþjóðleg stjórnkerfi eru að veikjast, vistkerfið er að hruni komið, innviðir brotna niður og þræðir menningarlegra sjálfmyndar okkar eru að rakna upp. Það sem við áður töldum stöðugt og áreiðanlegt, er nú viðkvæmt og brothætt.
Hvað er eftir þegar kerfin sem við unnum eftir hrynja? Hvað er mögulegt þegar enginn varanleg undirstaða er lengur til staðar?
Frekar en að syrgja það sem hrunið hefur, lítur sýningin á hrun sem formgerð endurnýjunar. Verkin reyna ekki að koma í veg fyrir hrun, heldur vinna með upplausnina, hrunið, sem leið að enduruppbyggingu.
„HRUN“ er sýning sem hægt er pakka saman, flytja og endurbyggja aftur og aftur – rétt eins og veröldin sem við lifum í.

*KOLLAPS* is a dogma-based exhibition that treats the concept (“collapse”) as an abstract theme, but also as a material and structural limitation. All the works in the exhibition can be collapsed and then reconstituted. The works are not fixed. Instead, they take disintegration as their point of departure. Emphasis is placed on process and material possibilities rather than on honouring the static monument. The exhibition reflects on the world we live in: the political foundation is weakening, the ecological system is breaking down, infrastructure is collapsing, and cultural narratives are losing coherence. What once seemed stable reveals itself to be fragile. What remains when the systems that ground the work fall apart? What is possible when there is no lasting foundation? Rather than mourning what has collapsed, the exhibition treats collapse as a form of renewal. The works do not attempt to prevent collapse, but work with disintegration toward reconstruction. *KOLLAPS* is an exhibition that can be packed, moved, and rebuilt again and again—just like the world we live in.