HRING EFTIR HRING, málverkasýning

Guðbjörg Ringsted
Frá
28/11/2026
Til
06/12/2026

Guðbjörg Ringsted sýnir verk sín í Mjólkurbúðinni, Kaupvangsstræti á Akureyri laugardaginn 28. nóvember frá kl 14 til 18. Aðra daga er opið kl. 14.00 til 17.00. Sýningunni lýkur 6.desember.
Þema sýningarinnar er útsaumsblóm af íslenskum kven-þjóðbúningum þar sem blómin fara sínar eigin leiðir á myndfletinum. Það er einhver frelsisþrá í útsaumsblómunum, eitt skýst af leið eða sker sig úr á annan hátt.