Ásamt Hlyni og Rebekku sýna á þessari sýningu Þau Agata Mickiewicz
& Styrmir Örn Guðmundsson, Jeannette Castioni og Bernard Khoury. Sýningin opnar 7. febrúar kl. 15.00.
Rebekka Kühnis sýnir myndir af dýnamískri náttúru sem eru frystar í tíma. Hún vekur áhorfendur til umhugsunar um stöðugt flæði og umbreytingu náttúrunnar en minnir líka á gildi þess að hægja á vilji maður meðtaka umhverfi sitt af dýpt.
Hlynur Hallsson, sem vinnur með texta, skoðar hvernig merkingu er miðlað. Hann beinir sjónum að merkingunni sem liggur handan þess forms sem miðlar henni hverju sinni. Þetta gerir hann t.d. með því að birta textaverk á þremur ólíkum tungumálum.

Málverk eftir Rebekka Kühnis

Verk eftir Hlyn Hallsson