HLAÐSPRETTURINN

Kristinn G. Jóhannsson
Frá
14/11/2026
Til
22/11/2026

Í þessari sýningu er Kristinn bundinn umhverfi sínu eins og svo oft áður. Hann hefur búið á bökkum Glerár síðustu áratugi og málverkin fjalla um Glerá, Kristinn sjálfan umhverfi og líf þeirra beggja sem er mis straumhart, stundum úfið, stundum líður fram í lygnum straumi og tekur lit og svip af veðurfari hugans, árstíðum og áreiti. Málverkin um Glerá eru sum máluð yfir eldri verk sem gefur þeim sem urðu ofaná, hrjúfa efnisþrútna áferð. Mörg verkin eru tvíein. Annað er nokkurn veginn það sem sjá má með augunum en úr áhrifum þess annar konar málverk sem lýtur þá aðeins aga þess, en ekki forskrift fyrirmyndarinnar, sem er þó jarðtengingin sem er Kristni mikilvæg. Meginatriði er að málverk er málverk og hver meðtekur með sínum hætti hvað sem orðavali líður. Þótt stundum sé reynt að hafa taumhald og stjórn á hugarrótinu verður niðurstaðan þó einatt óvænt og ófyrirséð en rótin, áhrif umhverfisins óbrigðult, jarðfast.