GAMBIT

Freyja Reynisdóttir
Frá
07/03/2026
Til
15/03/2026

Freyja Reynisdóttir (f.1989) opnar sýninguna GAMBIT, laugardaginn 7. mars 2026 kl:15:00

Hér vísar titillinn GAMBIT í leikjafræði – þegar tekin er meðvituð áhætta til þess að koma sér í betri stöðu. Á sýningunni má sjá sjálfsmyndir í formi málverka og teikninga sem gerðar voru í tilraun til þess að gera upp fórnir líkamans í tafli við eigið eðli.

”Ég lýt á starf mitt sem listamaður sem einhversskonar verufræðilegann djass-spuna sem skilur eftir sig brauðmola (eða listaverk) sem vísa í persónulegt ferli og pælingar. Eins og blóm sem vex og veit ekki alveg afhverju en er að geta sér til um það.”

Freyja hlaut Meistaragráðu í frjálsri myndlist frá Listaháskóla Íslands 2022 og lauk námi frá Myndlistarskólanum á Akureyri árið 2014. Hún hefur haldið og tekið þátt í fjölda sýninga og samstarfsverkefna hér á landi og erlendis.