Draumsýn á Jónsmessunótt

Rósa Njálsdóttir
Frá
20/06/2025
Til
29/06/2025

Sýning Rósu á nýjum olíumálverkum í Mjólkurbúðinni á Akureyri.
Opið verður kl 12-17 laugardaga og sunnudaga og kl 16-18 virka daga.
Opnun kl 17 föstudaginn 20. júní.

Allir velkomnir

Náttúran er svo mögnuð í sumarbyrjun. Allt að vakna af værum blundi eftir langan vetur og vor sem hefur gefið fyrirheit um gott og yndislegt sumar. Jónsmessan á sér sérstakan sess í hugum margra landsmanna, sveipuð dulúð, þjóðsögum og kynngimögnuðu andrúmslofti.

Í þeim anda ákvað ég að vinna að verkum fyrir sýninguna mína. Þau eru valin með tilliti til þess tíma sem nú fer í hönd, sumarsólstöður, bjartar nætur, íslenska sumarið og Jónsmessan með þeirri dulúð sem einkennir hana.
Sum verkin bera með sér ævintýrablæ, ævintýri sem vitjuðu mín í draumi og eru enn óráðin og skapa þar með rými fyrir íhugun og möguleika á skynjun fyrir hvern og einn.