Listatvíeikið Blik með sýninguna Manstu þegar andardrátturinn festist í blöðrunni?
Blik saman stendur af Solveigu Eddu og Ólöfu Dómhildi
Á sýningunni leiða listakonurnar saman verk sín sem eru í formi málverks, ljósmynda, skúlptúra og innsetninga í marglaga samtal um viðkvæmni, efni og mörk. Solveig Edda vinnur með olíumálverk, skúlptúra og innsetningu, en Ólöf Dómhildur ljósmyndaverk unnin með bleki í anda handmálunnar, skúlptúra og innsetningu, ljósmyndir teknar á Vestfjörðum og Norðurlandi. Verkin vinna með tengsl yfirborðs og dýptar, efnis, upplausnar og umbreytingar, hins sýnilega og þess sem leynist undir.
Sýningin opnar með gjörningi þar sem vatn, ljós og hreyfing hafa áhrif á upplifun áhorfandans á yfirborðinu. Í gjörningnum kanna listakonurnar mörk – þar sem augnablikið á milli öndunar og kyrrðar verður að táknmynd tilverunnar.
Listakonur ólust upp í Reykjavík, en fluttu vestur á Ísafjörð á fullorðins árum og starfa þar í myndlist meðfram öðrum störfum. Leið þeirra liggur nú norður að sýna afrakstur síðustu 2 ára.
Blik sameinar tveggja áratuga reynslu Ólafar og Solveigar í myndlist. Hvor um sig hefur sérhæft sig í sínum miðli Ólöf, ljósmyndun og Solveig, málverki, en í sameiginlegum verkum þeirra í Blik verða þessi miðlar hluti af opnu samtali þar sem samtal um það sem er á yfirborðinu og þess sem fer undir yfirborðið eru í forgrunni. Hvaða tilfinningar vakna hjá áhorfandanum, hvernig lítum við á yfirborð, er áherslan á það sem liggur undir eða þessi viðkvæma lína á milli þess sem liggur undir og þess sem liggur ofaná.
Staður: Mjólkurbúðin Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri.
11.–19. apríl 2025 kl. 14-17 alla daga
Aðgangur ókeypis og er opin öllum